Fara beint í efni
🚀
Setning GKÍ 2027
14. jan • 17:00–19:00
Bæta við dagatalGoogle.ics

Gervigreindar­keppni
Íslands

14.–21. janúar
2027

Þrjú raunveruleg gervigreindarverkefni

Verðlaun

  • 2.000.000+ kr. í verðlaun
  • Miðar á UTmessuna
  • Lovable-áskriftir
  • Sumarstörf hjá Íslandsbanka

Keppni hefst eftir

00
dagar
00
klst
00
mín
00
sek

Keppni

14.–21. janúar 2027

Lokað verður fyrir skráningu og breytingar á liðum kl. 20:00 þriðjudaginn 19. janúar, þegar opnað verður fyrir lokapróf.

Nánar um keppnina
  • Háskólaflokkur: Háskólanemar á Íslandi eða erlendis og framhaldsskólanemar á Íslandi
  • Opinn flokkur: Allir aðrir
  • Lið með allt að 3 meðlimum
  • 3 verkefni: Skoffín, Huldukona og Nykur
  • Setning keppninnar, verðlaunaafhending og aðstoð á Discord alla keppnina
  • Keppni fer fram rafrænt en boðið verður upp á vinnurými í Mýrinni, samfélagi frumkvöðla í húsi Grósku á Vísindagörðum.
  • Stefnt er að CUDA-hæfum Spark-vélum fyrir nemendur á meðan keppnin stendur; nánar verður greint frá aðgangi og reiknigetu síðar.

Verðlaunaafhending í Grósku

22. janúar 2027 kl. 15:30–17:00

  • Matur í boði
  • Kynningar fyrirtækja á notkun gervigreindar
  • Tækifæri til tengslamyndunar

Nýjar verkefnalýsingar verða birtar kl. 20:00 þann 14. janúar 2027.

Keppnisverkefni 2027

Ertu að leita að eldri verkefnalýsingum? Veldu 2026 hér fyrir ofan.

Verkefni

Nánar síðar

Skoffín

Verkefnalýsing, gögn og reglur um stigagjöf verða birt kl. 20:00 þann 14. janúar 2027.

Verkefni

Nánar síðar

Huldukona

Verkefnalýsing, gögn og reglur um stigagjöf verða birt kl. 20:00 þann 14. janúar 2027.

Verkefni

Nánar síðar

Nykur

Verkefnalýsing, gögn og reglur um stigagjöf verða birt kl. 20:00 þann 14. janúar 2027.

Það sem hefur verið staðfest

  • Keppnin stendur yfir 14.–21. janúar 2027.
  • Þrjú ný verkefni munu snúast um raunveruleg viðfangsefni gervigreindar.
  • Verkefnalýsingar, gagnasöfn, mælikvarðar og reglur um sendingar verða birt kl. 20:00 þann 14. janúar 2027, þegar keppnin hefst.

Aðstoð við nemendur í undirbúningi

  • Setning keppninnar, verðlaunaafhending og aðstoð á Discord alla keppnina.
  • Stefnt er að því að CUDA-hæfar Spark-vélar verði í boði fyrir nemendur á meðan keppnin stendur yfir.
  • Reiknigeta, aðgangur, þjónusta og mögulegar notkunartakmarkanir eru enn í mótun.

Fyrirhuguð Lovable-framsetningar­áskorun

Liðum verður boðið að nota Lovable til að búa til skýra og sjálfstæða vefsíðu sem útskýrir verkefnið, aðferðina, niðurstöður og gagnlegasta lærdóminn. Markmiðið er að gera góðar keppnislausnir skiljanlegar og nýtanlegar fyrir samfélagið.

Matsviðmið, skilaleiðbeiningar og skilafrestur verða kynnt fyrir keppnina.

Sumartækifæri

Efsta lið í háskólaflokki fær sumarstarf hjá Íslandsbanka. Stefnt er að því að bjóða sumarstörf hjá fleiri fyrirtækjum fyrir sigurvegara.

Undirbúðu þig fyrir 2027

Notaðu sama aðgang milli ára og staðfestu síðan þátttöku í næstu keppni.

Samstarfsaðilar

Ský
Advania
Háskóli Íslands
Íslandsbanki
Lovable
OpenAI
Vísindagarðar Háskóla Íslands
Evolv
Almannarómur
Mýrin
Fenris Creations
Hafrannsóknastofnun
Landsvirkjun

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Þarf ég reynslu af gervigreind til að taka þátt?

Nei, keppnin er opin fólki á öllum færnistigum. Við bjóðum upp á byrjunarkóða og grunnlíkön til að hjálpa þér af stað. Þetta er frábært tækifæri til að læra.

Hvernig virka liðin?

Lið geta haft allt að 3 meðlimi. Þú getur tekið þátt einstaklingslega og fundið liðsfélaga síðar eða stofnað lið frá byrjun.

Hver er munurinn á háskóla- og opna flokknum?

Háskólaflokkur er fyrir nemendur í háskóla, á Íslandi eða erlendis, og í framhaldsskóla á Íslandi. Opni flokkurinn er fyrir alla aðra, til dæmis fagfólk og alla sem hafa áhuga. Til að vinna til verðlauna í hvorum flokki sem er þurfa allir liðsmenn að búa á Íslandi eða hafa íslenska kennitölu. Lið sem uppfylla það ekki geta samt keppt.

Er aldurstakmark?

Já, þátttakendur þurfa að vera 16 ára eða eldri. Þú gefur upp fæðingarár þitt þegar þú skráir þig í keppnina og fyrir keppnina 2027 þarftu að vera fædd eða fæddur árið 2010 eða fyrr. Ef þú ert fædd eða fæddur 2011 eða síðar geturðu sent póst á contact@gki.is. Þátttakendur yngri en 18 ára (fæddir 2009 eða síðar) geta keppt og fengið verðlaun, en netfang þeirra birtist aldrei öðrum þátttakendum og foreldri eða forráðamaður þarf að staðfesta áður en þeir taka við verðlaunum.

Hvernig get ég undirbúið mig fyrir keppnina?

Skoðaðu verkefnin úr fyrstu Gervigreindarkeppni Íslands árið 2026 og prófaðu byrjunarkóðann og grunnlíkönin til að undirbúa þig.

Get ég keppt í háskólaflokki ef aðeins hluti liðsins er skráður í nám?

Nei. Til að keppa í háskólaflokki verða allir liðsmenn að uppfylla skilyrði háskólaflokksins. Ef einn liðsmaður uppfyllir þau ekki keppir liðið í opnum flokki.

Hvaða tól má ég nota?

Þú mátt nota hvaða forritunarmál, hugbúnaðarsöfn, forþjálfuð líkön eða forritaskil sem reglur verkefnisins leyfa. Lokalíkanið þarf að skila svari innan fyrirfram skilgreindra tímamarka verkefnisins, yfirleitt 10 sekúndna.

Hvernig virka sendingar?

Keyrðu líkanið á þjóni með opinberu HTTPS-vistfangi, annaðhvort á eigin tölvu í gegnum göng, til dæmis ngrok, eða á hýstum þjóni. Liðsmaður slær inn vistfangið og API-lykilinn á vefsíðunni og staðfestir með aðgangslykli og þá kallar matskerfið á þjóninn. Haltu honum gangandi þar til matinu er lokið.

Hver eru verðlaunin?

Yfir 2.000.000 kr. í verðlaun, miðar á UTmessuna og Lovable-áskriftir. Efsta lið í háskólaflokki fær sumarstarf hjá Íslandsbanka. Stefnt er að því að bjóða sumarstörf hjá fleiri fyrirtækjum fyrir sigurvegara.

Ég fékk ekki staðfestingarpóstinn. Hvað á ég að gera?

Tölvupósturinn getur tekið allt að mínútu að berast. Athugaðu líka ruslpóstinn. Ýttu á „Senda kóða aftur“ á staðfestingarsíðunni. Ef þú hefur lokað síðunni skaltu skrá þig inn með netfangi og lykilorði og þá sendum við þér nýjan kóða. Ef ekkert berst skaltu hafa samband við okkur á contact@gki.is.

Ég skráði mig með röngu netfangi. Hvernig laga ég það?

Áður en þú staðfestir netfangið skaltu ýta á „Breyta netfangi“ á staðfestingarsíðunni, leiðrétta netfangið, slá lykilorðið aftur inn og skrá þig. Nýi kóðinn er þá sendur á rétta netfangið. Eftir staðfestingu getur þú breytt netfanginu á prófílnum þínum.

Skrái ég mig inn með Google eða lykilorði?

Notaðu sömu leið og þú notaðir við nýskráningu. Ef þú skráðir þig með Google skaltu ýta á „Halda áfram með Google“ á innskráningarsíðunni. Ef þú vilt frekar nota lykilorð geturðu valið það með „Gleymt lykilorð?“ á innskráningarsíðunni. Þá aftengist Google en þú getur tengt það aftur á prófílnum þínum.

Hvernig geri ég annan liðsmann að liðsstjóra?

Þar til lokað er fyrir skráningu ýtir liðsstjórinn á „Gera að liðsstjóra“ við nafn liðsmanns undir „Næsta keppni“ á prófílnum sínum. Fyrri liðsstjórinn verður áfram í liðinu sem liðsmaður.

Hvernig fjarlægi ég liðsmann úr liðinu?

Liðsstjórinn ýtir á „Fjarlægja“ við nafn liðsmannsins undir „Næsta keppni“ á prófílnum sínum. Liðsmaðurinn tekur áfram þátt í keppninni og getur gengið í annað lið. Liðsmaður getur líka sjálfur farið úr liðinu með því að ýta á „Yfirgefa lið“. Hvorugt er hægt á meðan keppnin stendur yfir eða eftir að lokað er fyrir skráningu.

Hvernig breyti ég nafni liðsins?

Þar til lokað er fyrir skráningu ýtir liðsstjórinn á „Breyta liði“ undir „Næsta keppni“ á prófílnum sínum, breytir nafni liðsins og ýtir á „Vista“. Annað lið má ekki vera með sama nafn.

Hvernig eyði ég aðganginum mínum og hvað getur komið í veg fyrir það?

Ýttu á „Eyða aðgangi“ á prófílnum þínum. Það er ekki hægt á meðan keppnin stendur yfir eða á meðan þú ert í liði. Farðu því fyrst úr liðinu. Liðsstjóri gerir fyrst annan liðsmann að liðsstjóra eða eyðir liðinu með „Eyða tómu liði“ ef hann er einn í því. Ekki er hægt að eyða aðgangi sem lausnir hafa verið sendar inn með, því niðurstöður keppninnar eru varðveittar. Hafðu samband við okkur á contact@gki.is ef þú getur ekki farið úr liðinu eða ef eitthvað annað kemur í veg fyrir eyðinguna.

Leiðbeiningar um sendingar

Svona seturðu upp, prófar og sendir inn lausn í GKÍ 2027.

Notarðu Claude Code, Codex eða annað forritunartól með gervigreind? Skráin AGENTS.md í byrjunarkóðanum gefur því það samhengi sem það þarf. Liðsmaður samþykkir samt hvert mat: til að senda inn þarf aðgangslykil á aðgangi liðsmanns á vefsíðunni.

01

Það sem þú þarft

  • Python 3.11 eða nýrra og git.
  • Ókeypis aðgang að ngrok fyrir opinbert vistfang (mælt með) eða cloudflared fyrir connect.
  • Tæki sem styður aðgangslykla: Face ID, Touch ID, Windows Hello eða öryggislykil.
  • Notendaaðgang á vefsíðunni og aðild að liði 2027.

02

Sæktu byrjunarkóðann

Byrjunarkóði 2027 verður birtur þegar keppnin hefst. Þegar þú hefur sótt hann skaltu keyra:

python gki.py setup

setup býr til .venv og .env-skrá með þínum eigin API-lykli. Skipuleggjendur úthluta aldrei lyklum. Settu .env aldrei í git og límdu lykilinn aldrei inn í spjall. Notaðu python3 ef python finnst ekki.

03

Prófaðu á eigin tölvu

python gki.py test    # einingapróf
python gki.py run     # þjónn á http://localhost:8000
python gki.py check   # í öðrum glugga

check sendir sýnidæmi á þjóninn með API-lyklinum. Staðbundnar prófanir eru ótakmarkaðar og snerta aldrei falin gögn.

04

Gerðu þjóninn aðgengilegan

Við mælum með ngrok. Hafðu run í gangi og ræstu ngrok á sömu gátt (8000) í öðrum glugga:

ngrok config add-authtoken <tóki>         # einu sinni, með tókanum af stjórnborði ngrok
ngrok http 8000                           # sýnir opinbert https://-vistfang; hafðu opið
python gki.py check https://<vistfang>    # í þriðja glugga

Ókeypis aðgangi að ngrok fylgir eitt fast vistfang (endar á ngrok-free.app eða ngrok-free.dev) sem helst óbreytt þótt ngrok sé endurræst. Í vafra sýnir ngrok fyrst viðvörunarsíðu: smelltu á Visit. Matskerfið kallar beint á þjóninn og fær ekki þá síðu.

Þú getur líka notað connect, sem ræsir þjóninn á bak við Cloudflare-göng (þarf cloudflared). Stöðvaðu run fyrst því að connect ræsir þjóninn sjálft á gátt 8000:

python gki.py connect                     # sýnir opinbert vistfang og API-lykil; hafðu opið
python gki.py check https://<vistfang>    # í öðrum glugga

Vistfangið sem endar á trycloudflare.com breytist í hvert sinn sem connect er ræst. Hvaða opinbera HTTPS-hýsing sem er virkar líka: eigin þjónn eða skýjaþjónusta eða Docker á bak við HTTPS.

05

Sendu inn á vefsíðunni

  • Skráðu þig inn og gakktu í lið 2027.
  • Settu upp aðgangslykil fyrir tækið á síðunni fyrir sendingar. Fyrst staðfestirðu lykilorðið þitt (eða kóða sem við sendum þér í tölvupósti ef þú skráir þig inn með Google).
  • Veldu verkefni og Prófun, límdu inn grunnvistfangið og API-lykilinn og staðfestu með aðgangslyklinum.

Sláðu aðeins inn grunnvistfangið: https:// og heiti hýsilsins, án slóðar (ekki …/predict), án annarrar gáttar en 443 og án ?, #, notandanafns eða lykilorðs. Vistföng á einka- eða staðarneti eru ekki leyfð.

Liðsmaður tekur þetta skref. Aðgangslykillinn staðfestir að aðgangur liðsmanns hafi samþykkt matið en sannar ekki hver skrifaði lausnina. Forritunartól með gervigreind geta undirbúið vistfangið og lykilinn en liðsmaður sendir inn.

Haltu þjóninum gangandi þar til matinu er lokið.

06

Reglur sem skipta máli

  • Sendingar í prófun eru takmarkaðar á dag fyrir hvert lið og verkefni. Síðan fyrir sendingar sýnir hve margar eru eftir og talningin endurstillist kl. 00:00 UTC.
  • Villur sem stafa af vefsíðunni eða matskerfinu teljast ekki með.
  • Hvert lið getur aðeins haft eitt mat í bið eða keyrslu í hverju verkefni.
  • Í lokaprófi fær hvert lið eina tilraun í hverju verkefni. Tilraunin telst notuð þegar matið er ræst, nema matskerfið hafni því áður en það hefur samband við þjóninn.
  • Stig úr lokaprófi eru falin þar til úrslit eru birt.
  • Þjónninn fær aldrei að vita hvort beiðni tilheyrir prófun eða lokaprófi.

07

Algeng vandamál

Vefsíðan nær ekki sambandi við þjóninn
localhost er ekki opinbert vistfang. Notaðu ngrok, connect eða hýstan þjón og opnaðu <vistfang>/health af öðru neti, til dæmis í síma með slökkt á Wi-Fi.
Vistfanginu er hafnað
Sláðu aðeins inn grunnvistfangið sem byrjar á https://, á gátt 443 og án slóðar, ?, #, notandanafns eða lykilorðs. Vistföng á einka- eða staðarneti eru ekki leyfð. Ef heiti hýsilsins finnst ekki kemur fram villa um það á forminu: athugaðu vistfangið og hvort ngrok eða connect sé enn í gangi.
401 Invalid API key
Límdu inn nákvæmlega lykilinn úr .env eða úr úttaki connect, án gæsalappa og án orðsins Bearer.
422-villa
Beiðnin passar ekki við forritaskilin. Keyrðu python gki.py test og berðu saman við sýnidæmin í fixtures/.
500-villa
Kóðinn þinn kastaði villu, skilaði röngum fjölda svara eða ógildu úttaki. Skoðaðu gluggann þar sem þjónninn keyrir.
Tíminn rennur út eða göngin rofna
Gættu þess að tölvan fari ekki í dvala, hladdu líkaninu inn við ræsingu en ekki við hverja beiðni og svaraðu innan tímamarka verkefnisins.
Mat situr fast eða brást okkar megin
Geymdu auðkenni sendingarinnar og hafðu samband við skipuleggjendur á Discord. Skipuleggjendur geta veitt nýja tilraun í lokaprófi ef staðfest er að bilun hafi orðið í innviðum.
Fyrir lokapróf
Keyrðu prófun fyrst og notaðu hýsingu sem helst uppi allt matið. Göngin lokast þegar ngrok eða connect er stöðvað og ókeypis áskrift ngrok hefur mánaðarleg hámörk á fjölda beiðna og gagnamagn.

Spurt og svarað

Tæknilegar spurningar

Hvað er líkan?

Líkan er kerfi sem býr til úttak út frá inntaki, til dæmis stórt tungumálalíkan eins og ChatGPT eða einfalt línulegt fall. Flest líkön eru þjálfuð á pörum af inntaki og væntu úttaki. Við þjálfun er tapfall lágmarkað svo að spár líkansins verði sem næst væntu úttaki.

Hvernig er frammistaða líkana mæld?

Með mælikvarða sem er reiknaður á gögnum sem líkanið hefur ekki séð. Algengastur er nákvæmni, það er hlutfall réttra spáa. Aðrir eru til dæmis meðalfervik (MSE), F1-gildi og AUC. Mælikvarði hvers verkefnis er birtur með verkefninu.

Hvað eru forritaskil og af hverju notar keppnin þau?

Forritaskil (e. API) eru samkomulag um það hvernig forrit skiptast á beiðnum og svörum, oftast á JSON-sniði yfir HTTPS. Þjónninn þinn býður upp á forritaskil og matskerfið sendir þjóninum falin inntök og reiknar stig út frá svörunum. Byrjunarkóðinn sér um forritaskilin og þú þarft aðeins að skrifa kóða líkansins.

Hvað er API-lykillinn?

Leynilegur lykill sem matskerfið sendir með hverri beiðni svo að þjónninn viti að beiðnin sé ósvikin. python gki.py setup býr hann til en skipuleggjendur úthluta aldrei lyklum. Hann er geymdur í .env. Settu hann aldrei í git eða spjall og sláðu hann aðeins inn á síðunni fyrir sendingar.

Af hverju get ég ekki bara hlaðið líkaninu upp?

Liðin nota ólík forritunarmál, forritasöfn og vélbúnað og það yrði hægt og brothætt að keyra þetta allt hjá okkur. Með forritaskilum þarf matskerfið aðeins vistfangið og lykilinn og þú hefur fulla stjórn á kóðanum. Svona eru líkön líka oftast gerð aðgengileg í atvinnulífinu.

Hvað eru göng og hvað gerir gki.py connect?

Göng gefa þjóni á tölvunni þinni opinbert HTTPS-vistfang án þess að breyta þurfi stillingum beinisins. Við mælum með ngrok: ngrok http 8000 beinir föstu ngrok-vistfangi þínu á þjóninn sem run ræsir. Þú getur líka notað connect, sem ræsir þjóninn og Cloudflare-göng með cloudflared og sýnir svo vistfangið og lykilinn. Það vistfang virkar aðeins meðan connect keyrir og breytist í hvert sinn sem það er ræst.

Má ég keyra þjóninn á fartölvunni minni?

Já. Gættu þess að tölvan fari ekki í dvala og sé í hleðslu og nettengd þar til matinu er lokið. Fyrir lokapróf skaltu nota hýsingu sem helst uppi allt matið.

Af hverju þarf vistfangið að vera opinbert HTTPS-vistfang?

Matskerfið keyrir í skýinu og nær hvorki í localhost né einkanet. HTTPS dulkóðar lykilinn og svörin á leiðinni. Formið tekur aðeins við grunnvistfangi á gátt 443 og matskerfið bætir sjálft við slóðum forritaskilanna.

Hvað gerir aðgangslykillinn?

Samþykkja þarf hvert mat með aðgangslykli á aðgangi liðsmanns á vefsíðunni, fyrir verkefnið, gagnasafnið, vistfangið og lykilinn. Hann staðfestir að aðgangur liðsmanns hafi samþykkt matið en sannar ekki hver skrifaði lausnina. Skrefið er handvirkt af ásettu ráði: forritunartólið getur undirbúið vistfangið og lykilinn og liðsmaður sendir inn.

Hvað telst með í daglegu hámarki í prófun?

Allar sendingar í prófun sem liðið ræsir í verkefninu, líka þær sem eru enn í bið eða keyrslu. Villur sem stafa af vefsíðunni eða matskerfinu teljast ekki með. Síðan fyrir sendingar sýnir hve margar eru eftir og talningin endurstillist kl. 00:00 UTC.

Björn Thor Stefánsson

Björn Thor Stefánsson

Framhaldsnemi í ICME við Stanford

Kristján Sölvi Örnólfsson

Kristján Sölvi Örnólfsson

Forritari í gervigreind og sjálfvirknivæðingu hjá Evolv (hluti af Advania)

Oliver Sanchez

Oliver Sanchez

Rannsóknarverkfræðingur í gervigreind hjá Mimic

Viktor Már Guðmundsson

Viktor Már Guðmundsson

Framhaldsnemi í gagnavísindum við Harvard

Af hverju bjuggum við þetta til?

Við erum vinahópur sem hefur tekið þátt í mörgum keppnum, allt frá stærðfræðikeppnum í grunnskóla til róbóta hakkaþona. Þessar keppnir hafa kennt okkur svo mikið og eru ein besta leiðin til að læra nýtt efni hratt. Maður kafar djúpt í vandamál, prófar fullt af gölnum lausnum sem maður hefur aldrei snert áður og kemst að því hvað virkar í raun. Þetta er allt öðruvísi en skólaverkefni þar sem kennarinn hefur þegar matað mann á öllu sem þarf til að leysa verkefnin. Þar sem Ísland hefur ekki árlega keppni eins og þær sem við lærðum af, ákváðum við að búa til eina sjálfir. Við trúum því að þetta verði skemmtileg og hagnýt leið til að efla gervigreindarsamfélag Íslands.

Hvað gerir þetta öðruvísi?

  1. Skýr markmið. Þú veist nákvæmlega hvað þú átt að gera. Engin þörf á að finna hugmynd að verkefni.
  2. Raunveruleg vandamál úr iðnaðinum. Hvert verkefni er byggt á raunverulegu vandamáli og því ertu að leysa raunverulegar verkfræðilegar áskoranir, ekki tilbúin vandamál.
  3. Keyrðu líkönin þín. Þú keyrir lausnina á þjóni sem matskerfið okkar kallar á yfir HTTPS. Ekki lengur minnisbækur sem virka bara á fartölvunni þinni.
  4. Aðeins tölur, ekkert bull. Allt er dæmt megindlega. Engar kynningar, engar frumgerðir, engir huglægir mannlegir dómarar sem velja uppáhalds.
  5. Heil vika. Þú hefur tíma til að prófa þig áfram, mistakast og prufa aðrar aðferðir.

Hugsunin bak við merkið

Merkið okkar sækir innblástur í taugatengsl gervigreindar. Hönnunin byggir á traustu grindarkerfi þar sem tengipunktar mynda flæði og nýsköpun og við nánari skoðun má greina skammstöfun keppninnar, GKÍ, þar sem punktarnir tengjast. Hugmyndin að baki vefnum og öllu útlitinu er hálendi Íslands, skærgrænn mosi á svörtum sandi. Þaðan koma litirnir, dökki grunnurinn og mosagræni liturinn, og verurnar þrjár sem tákna verkefnin eru hulduverur á hálendinu, sóttar í íslenskar þjóðsögur.

Kærar þakkir til Guðrúnar Söru Örnólfsdóttur fyrir hönnun og útfærslu.

Gervigreindarkeppni Íslands