Fara beint í efni
Gervigreindar­keppni
Íslands

14.–21. janúar
2027

Keppnisreglur 2027

Hér eru reglur Gervigreindarkeppni Íslands 2027 á einum stað.

Útgáfa 2027-1

Þetta eru drög. Reglurnar geta enn breyst og verða endanlegar þegar keppnin hefst.

1. Skipuleggjandi

  1. 1.1.Keppnin er haldin af félaginu Gervigreindarkeppni Íslands (GKÍ), kt. 470826-1420, Hléskógum 26, 109 Reykjavík, sem ekki er rekið í hagnaðarskyni.
  2. 1.2.Spurningar um reglurnar, persónuvernd eða framkvæmd keppninnar skal senda á contact@gki.is.

2. Tímasetningar

Allir tímar eru að íslenskum tíma, sem er sá sami og UTC.

Opnunarviðburður (e. kickoff)
fimmtudaginn 14. janúar 2027 kl. 17:00–19:00
Keppnin hefst og verkefnin eru birt
fimmtudaginn 14. janúar 2027 kl. 20:00
Opnað fyrir lokapróf; lokað fyrir skráningu og breytingar á liðum
þriðjudaginn 19. janúar 2027 kl. 20:00
Póstur til 20 efstu liða hvors flokks (sjá 8.1)
miðvikudaginn 20. janúar 2027 kl. 20:00
Keppni lýkur
fimmtudaginn 21. janúar 2027 kl. 20:00
Verðlaunaafhending í Grósku
föstudaginn 22. janúar 2027 kl. 15:30–17:00
Úrslit birt á vefnum
föstudaginn 22. janúar 2027 kl. 16:00
  1. 2.1.Keppnin fer fram á netinu. Boðið er upp á vinnurými í Mýrinni í Grósku.

3. Þátttökuréttur og flokkar

  1. 3.1.Keppt er í tveimur flokkum: háskólaflokki og opnum flokki.
  2. 3.2.Háskólaflokkur: lið keppir í háskólaflokki ef allir liðsmenn eru skráðir í nám til prófgráðu við viðurkenndan háskóla einhvern tíma í keppnisvikunni (14.–21. janúar 2027). Eins árs diplómanám telst með en stök námskeið og endurmenntun ekki. Nemendur íslenskra háskóla teljast með, líka þeir sem eru í skiptinámi erlendis, og sama gildir um skiptinema við íslenska háskóla. Nemendur erlendra háskóla teljast með ef þeir eru Íslendingar, það er ef þeir eru íslenskir ríkisborgarar eða hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi á Íslandi. Aðrir nemendur erlendra háskóla eru velkomnir en keppa í opnum flokki.
  3. 3.3.Lið þar sem einn eða fleiri liðsmenn uppfylla ekki skilyrði háskólaflokks keppir í opnum flokki.
  4. 3.4.Opinn flokkur: allir sem uppfylla aldursskilyrðið í 3.5 geta keppt í opnum flokki, óháð búsetu eða þjóðerni. Skilyrði fyrir verðlaunum í opnum flokki eru í 9. kafla.
  5. 3.5.Lágmarksaldur: þátttakendur þurfa að verða 18 ára í síðasta lagi á keppnisárinu. Fyrir keppnina 2027 þýðir það að þátttakandi þarf að vera fæddur árið 2009 eða fyrr. Ekki er hægt að taka þátt með samþykki forráðamanns. Ef vafi leikur á geta skipuleggjendur beðið verðlaunahafa að staðfesta aldur sinn (sjá 8.5).
  6. 3.6.Lið sem uppfyllir ekki skilyrði háskólaflokks, eða getur ekki staðfest þau (sjá 8. kafla), keppir í opnum flokki.
  7. 3.7.Skipuleggjendur GKÍ mega keppa í sérstöku liði skipuleggjenda, en það lið er ekki raðað og vinnur ekki til verðlauna. Skipuleggjendur hafa aðgang að földum gögnum og mega ekki nota þau.
  8. 3.8.Við skráningu svarar hver þátttakandi spurningunni „Stundar þú nám við íslenskan háskóla í ár?“ og svarið ræður því í hvaða flokki hann keppir. Hægt er að breyta svarinu þar til þátttakandinn eða lið hans hefur sent inn lausn, en ekki eftir að keppninni lýkur.

4. Lið

  1. 4.1.Í hverju liði eru 1–3 liðsmenn. Hægt er að keppa einn.
  2. 4.2.Hver þátttakandi má aðeins vera í einu liði.
  3. 4.3.Fram að lokun skráningar, þriðjudaginn 19. janúar 2027 kl. 20:00, er hægt að skrá sig, stofna lið og ganga í lið sem er ekki fullt. Eftir það er ekki hægt að bæta við liðsmönnum eða skipta um lið.
  4. 4.4.Frá því að keppnin hefst og þar til henni lýkur fimmtudaginn 21. janúar 2027 kl. 20:00 getur enginn yfirgefið lið.
  5. 4.5.Á stigatöflum birtast liðsheiti, fullt nafn liðsmanna, flokkur, stig og röðun. Á stigatöflum einstakra verkefna birtast einnig merki háskóla liðsmanna. Liðsheiti og stig eru líka send sjálfkrafa á Discord-þjón keppninnar. Nánar er sagt frá því í persónuverndarstefnunni.

5. Aðgangar og skráning

  1. 5.1.Hver manneskja má aðeins hafa einn aðgang.
  2. 5.2.Staðfesting netfangs er ekki staðfesting á skólavist. Skólavist er aðeins staðfest eins og lýst er í 8. kafla.
  3. 5.3.Þátttakandi í háskólaflokki staðfestir við skráningu í keppnina að hann stundi nám við íslenskan háskóla og geti sýnt fram á skólavist ef liðið hans kemur til greina til verðlauna.
  4. 5.4.Netfang getur aðeins tilheyrt einum aðgangi. Netfang aðgangs sem hefur verið eytt er ekki hægt að nota fyrir neinn aðgang í þrjú ár. Sama gildir um fyrra netfang aðgangs eftir að því hefur verið breytt, einnig fyrir sama aðgang. Nánar er fjallað um þetta í persónuverndarstefnunni.

6. Verkefni, sendingar og stigagjöf

  1. 6.1.Í keppninni eru þrjú verkefni. Þetta eru raunhæf vélnámsverkefni sem geta til dæmis tengst myndgreiningu, máltækni, tímaraðagreiningu og spám, meðmælakerfum, styrkingarnámi eða námi sem sameinar ólíkar gerðir gagna (e. multimodal learning). Hvert verkefni hefur sína lýsingu með matsmælikvarða, tímamörkum og öðrum sérreglum.
  2. 6.2.Lið keyrir lausnina sína á þjóni með opinberu HTTPS-vistfangi. Liðsmaður slær vistfangið og API-lykil inn á vefinn og staðfestir sendinguna með aðgangslykli (e. passkey). Aðeins manneskja í liðinu má hefja sendingu; sjálfvirkir erindrekar (e. agents) mega undirbúa hana en ekki staðfesta hana. Liðið ber ábyrgð á að þjónninn sé gangandi þar til matinu er lokið.
  3. 6.3.Prófun (e. validation): á meðan keppnin stendur yfir geta lið sent inn á prófunargögn og séð stigin sín á opinberu stigatöflunni. Prófun er til æfinga og ræður ekki úrslitum.
  4. 6.4.Hvert lið getur aðeins haft eina sendingu í biðröð eða í mati í hverju verkefni í einu.
  5. 6.5.Daglegt hámark er á fjölda prófunarsendinga hvers liðs í hverju verkefni. Sendingarsíðan sýnir hve margar eru eftir og talið er frá kl. 00:00 UTC. Sendingar sem mistakast vegna vefsins eða matskerfisins, eða sem aldrei náðu sambandi við þjón liðsins, teljast ekki með.
  6. 6.6.Hnappurinn „Athuga tengingu“ sendir eitt tilbúið dæmi á þjón liðsins. Það er ekki sending og notar hvorki prófunarsendingu né tilraun í lokaprófi. Hægt er að athuga tenginguna einu sinni á mínútu fyrir hvert verkefni.
  7. 6.7.Lokapróf (e. final test): hvert lið fær eina tilraun við lokapróf í hverju verkefni. Tilraun sem er hafin telst notuð, jafnvel þótt hún mistakist. Tilraun sem matskerfið hafnar áður en það hefur samband við þjón liðsins telst ekki notuð og liðið má reyna aftur. Ef tilraun mistekst vegna staðfestrar bilunar hjá skipuleggjendum geta skipuleggjendur veitt liðinu nýja tilraun.
  8. 6.8.Þjónn liðsins fær ekki að vita hvort fyrirspurn tilheyrir prófun eða lokaprófi.
  9. 6.9.Stig úr lokaprófi eru falin þar til úrslit eru birt.
  10. 6.10.Stigagjöf: hrá stig í hverju verkefni eru reiknuð með mælikvarða verkefnisins. Þau eru síðan stöðluð á bilinu 0 til 1: besta birta grunnlína (e. baseline) verkefnisins fær 0 og besta lið sem raðað er fær 1, eftir formúlunni (stig − grunnlína) / (besta − grunnlína). Stig undir grunnlínu verða 0. Ef besta lið sem raðað er stendur sig ekki betur en grunnlínan, fær lið 1 ef stig þess eru að minnsta kosti jafngóð og stig besta liðsins, annars 0. Heildarstig liðs eru meðaltal staðlaðra stiga í öllum verkefnum; verkefni sem lið hefur ekki skilað lausn í fær 0.
  11. 6.11.Úrslit ráðast af heildarstigum úr lokaprófi. Röðun er reiknuð sér fyrir hvorn flokk.
  12. 6.12.Lið skipuleggjenda, gervigreindarerindrekar og grunnlínur birtast á stigatöflunni merkt sem „ekki raðað“. Þau hafa ekki áhrif á stöðlun eða röðun og vinna ekki til verðlauna.

7. Leyfileg tól og heiðarleiki

  1. 7.1.Leyfilegt er að nota hvaða forritunarmál, hugbúnaðarsöfn, forþjálfuð líkön, forritaskil (API) og gervigreindaraðstoð sem er, nema sérreglur verkefnis segi annað. Svar þjónsins verður að berast innan tímamarka verkefnisins.
  2. 7.2.Bannað er að reyna að komast yfir falin prófunar- eða lokaprófsgögn eða svör við þeim, eða að nota slík gögn hafi maður komist yfir þau.
  3. 7.3.Bannað er að nota fleiri en einn aðgang eða keppa í fleiri en einu liði.
  4. 7.4.Bannað er að ráðast á, ofhlaða eða reyna að komast fram hjá öryggi eða takmörkunum vefsins, matskerfisins eða annarra liða.
  5. 7.5.Skipuleggjendur fylgjast með vísbendingum um brot, til dæmis tvítekna aðganga eða lið sem nota sama þjón. Slíkar vísbendingar leiða ekki sjálfkrafa til útilokunar; manneskja fer yfir þær og getur haft samband við liðið og beðið um skýringar, til dæmis kóða lausnarinnar. Skipuleggjendur hafa lokaorðið.

8. Staðfesting á þátttökurétti

  1. 8.1.Miðvikudaginn 20. janúar 2027 kl. 20:00, þegar sólarhringur er eftir af keppninni, fá 20 efstu lið hvors flokks á opinberu stigatöflunni (prófun) sama tölvupóst þar sem þau eru beðin um að staðfesta þátttökurétt sinn. Póstur þýðir ekki að liðið vinni til verðlauna; hann segir aðeins að liðið sé meðal 20 efstu á opinberu stigatöflunni.
  2. 8.2.Lið í háskólaflokki sem fá póstinn senda gögn um skólavist á skolavist@gki.is í síðasta lagi föstudaginn 22. janúar 2027 kl. 12:00. Öll lið mega senda gögn fyrr að eigin frumkvæði.
  3. 8.3.Lið í verðlaunasæti sem hefur ekki staðfest þátttökurétt sinn eftir lokamat fær beiðni um það og frest til að svara. Ef liðið staðfestir ekki innan frestsins færist næsta lið upp.
  4. 8.4.Skólavist (háskólaflokkur): staðfesting á skólavist er alltaf nauðsynleg fyrir lið í háskólaflokki sem eru í verðlaunasæti. Hver liðsmaður sendir gögn sem sýna nafn, skóla og námskeið á vorönn 2027, til dæmis skjáskot úr Uglu, Canvas eða MySchool, eða gjaldfrjálsa staðfestingu á skólavist frá skólanum. GKÍ krefst aldrei gjaldskylds vottorðs. Nemendaskírteini, gamalt námsferilsyfirlit eða inntökubréf duga ekki ein og sér. Það má hylja allt annað, svo sem kennitölu og einkunnir. Tveir skipuleggjendur fara yfir gögnin. Ef vafi leikur á geta skipuleggjendur beðið um stutta skjádeilingu þar sem viðkomandi skráir sig inn í kerfi skólans. Liðsmaður sem er nemandi erlends háskóla, en ekki skiptinemi við íslenskan háskóla, sendir auk þess gögn sem sýna að hann sé Íslendingur, til dæmis myndasíðu vegabréfs eða prófskírteini úr framhaldsskóla á Íslandi. Það má hylja allt annað en nafn og það sem sýnir ríkisfang eða prófið. Skipuleggjendur fara yfir þessi gögn á sama hátt.
  5. 8.5.Skipuleggjendur geta beðið liðsmann að staðfesta hver hann er, aldur hans (sjá 3.5) eða, í opnum flokki, að hann hafi íslenska kennitölu (sjá 9.3), en gera það aðeins ef vafi leikur á. Þá sendir liðsmaðurinn skjal sem sýnir nafn hans og kennitölu.
  6. 8.6.Gögnum um skólavist, gögnum sem sýna að liðsmaður sé Íslendingur og skjölum sem sýna kennitölu er eytt í síðasta lagi 30 dögum eftir verðlaunaafhendinguna. Aðeins er geymt hvort lið stóðst staðfestingu eða ekki.
  7. 8.7.Ef lið í háskólaflokki getur ekki staðfest skólavist allra liðsmanna keppir það í opnum flokki og verðlaun færast til næsta liðs í háskólaflokki sem hefur staðfest þátttökurétt sinn.

9. Verðlaun

  1. 9.1.Heildarverðlaun eru 2.000.000 kr.
  2. 9.2.Önnur verðlaun geta verið miðar á UTmessuna, áskriftir (til dæmis að Lovable og lausnum Miðeindar) og sumarstörf hjá samstarfsaðilum. Endanlegur listi verður birtur áður en keppnin hefst.
  3. 9.3.Skilyrði fyrir verðlaunum í opnum flokki: allir liðsmenn þurfa að hafa íslenska kennitölu. Ekki skiptir máli hvenær kennitalan var fengin; hún getur til dæmis verið frá fyrri dvöl eða skiptinámi á Íslandi. Ekki er gerð krafa um búsetu á Íslandi eða að liðsmenn séu staddir á Íslandi. Skipuleggjendur staðfesta kennitöluna aðeins ef vafi leikur á (sjá 8.5). Lið sem uppfyllir ekki skilyrðið getur keppt og birtist á stigatöflunni, en verðlaun færast til næsta liðs.
  4. 9.4.Peningaverðlaun eru yfirleitt greidd sem gjafakort. Annars eru þau greidd inn á bankareikning sem liðið gefur upp.
  5. 9.5.Verðlaun eru aðeins veitt liðum sem hafa staðfest þátttökurétt sinn (8. kafli). Verðlaun sem ekki er hægt að veita færast til næsta liðs.

10. Jöfn stig

  1. 10.1.Heildarstig liða eru borin saman eins nákvæmlega og þau eru reiknuð, með fleiri aukastöfum en birtast á stigatöflunni. Séu heildarstig nákvæmlega jöfn raðast ofar það lið sem fékk fyrr samþykkta þá lokaprófssendingu sem réð stigum þess. Þar sem heildarstig byggjast á lokaprófssendingum í öllum verkefnum er miðað við þá sem síðast var samþykkt. Lið deila aldrei sæti.

11. Samskipti og persónuvernd

  1. 11.1.Opinberar tilkynningar eru birtar á vef keppninnar og sendar í tölvupósti frá netfangi á léninu gki.is. Aðstoð er veitt á Discord-þjóni keppninnar alla keppnina.
  2. 11.2.Um vinnslu persónuupplýsinga gildir persónuverndarstefna GKÍ á gervigreindarkeppni.is/personuvernd.

12. Breytingar á reglum

  1. 12.1.Reglurnar eru endanlegar þegar keppnin hefst. Eftir það eru þær aðeins leiðréttar ef um augljósa villu er að ræða. Allar leiðréttingar eru tilkynntar opinberlega á vef keppninnar og í tölvupósti til þátttakenda, með dagsetningu og lýsingu á breytingunni.