Fara beint í efni
Gervigreindar­keppni
Íslands

14.–21. janúar
2027

Staðreyndir um keppnina

Gervigreindarkeppni Íslands 2027 í stuttu máli.

Hvað
Gervigreindarkeppni Íslands (GKÍ) er árleg keppni í gervigreind. Á ensku heitir hún Icelandic AI Championship.
Hvenær
Keppnin stendur yfir 14.–21. janúar 2027. Hún hefst kl. 20:00 fimmtudaginn 14. janúar og lýkur kl. 20:00 fimmtudaginn 21. janúar.
Hvar
Keppnin fer fram rafrænt.
Kostnaður
Þátttaka er ókeypis.
Lið
Keppt er í liðum með allt að 3 meðlimum.
Flokkar
Keppt er í tveimur flokkum: háskólaflokki og opnum flokki. Í reglunum kemur fram hver keppir í hvorum flokki. Reglurnar
Verkefni
Verkefnin eru þrjú: Skoffín, Huldukona og Nykur. Verkefnalýsingarnar birtast kl. 20:00 14. janúar 2027.
Verðlaun
Verðlaunin nema samtals yfir 2.000.000 kr.
Skipuleggjandi
Gervigreindarkeppni Íslands er félag sem ekki er rekið í hagnaðarskyni, kt. 470826-1420.

Spurt og svarað

Kostar eitthvað að taka þátt?
Nei. Þátttaka er ókeypis.
Hver getur tekið þátt og í hvaða flokki?
Það kemur fram í keppnisreglunum. Lesa reglurnar
Hvað mega vera margir í liði?
Allt að 3.
Hvernig eru lausnir metnar og verðlaun veitt?
Reglurnar lýsa sendingum, stigagjöf og verðlaunum. Lesa reglurnar
Hvernig hef ég samband?
Sendu tölvupóst á contact@gki.is.