Fara beint í efni
Gervigreindar­keppni
Íslands

14.–21. janúar
2027

Leiðbeiningar um sendingar

Svona seturðu upp, prófar og sendir inn lausn í GKÍ 2027.

Notarðu Claude Code, Codex eða annað forritunartól með gervigreind? Skráin AGENTS.md í byrjunarkóðanum gefur því það samhengi sem það þarf. Liðsmaður samþykkir samt hvert mat: til að senda inn þarf aðgangslykil á aðgangi liðsmanns á vefsíðunni.

01

Það sem þú þarft

  • Python 3.11 eða nýrra og git.
  • Ókeypis aðgang að ngrok fyrir opinbert vistfang (mælt með) eða cloudflared fyrir connect.
  • Tæki sem styður aðgangslykla: Face ID, Touch ID, Windows Hello eða öryggislykil.
  • Notendaaðgang á vefsíðunni og aðild að liði 2027.

02

Sæktu byrjunarkóðann

Byrjunarkóði 2027 verður birtur þegar keppnin hefst. Þegar þú hefur sótt hann skaltu keyra:

python gki.py setup

setup býr til .venv og .env-skrá með þínum eigin API-lykli. Skipuleggjendur úthluta aldrei lyklum. Settu .env aldrei í git og límdu lykilinn aldrei inn í spjall. Notaðu python3 ef python finnst ekki.

03

Prófaðu á eigin tölvu

python gki.py test    # einingapróf
python gki.py run     # þjónn á http://localhost:8000
python gki.py check   # í öðrum glugga

check sendir sýnidæmi á þjóninn með API-lyklinum. Staðbundnar prófanir eru ótakmarkaðar og snerta aldrei falin gögn.

04

Gerðu þjóninn aðgengilegan

Við mælum með ngrok. Hafðu run í gangi og ræstu ngrok á sömu gátt (8000) í öðrum glugga:

ngrok config add-authtoken <tóki>         # einu sinni, með tókanum af stjórnborði ngrok
ngrok http 8000                           # sýnir opinbert https://-vistfang; hafðu opið
python gki.py check https://<vistfang>    # í þriðja glugga

Ókeypis aðgangi að ngrok fylgir eitt fast vistfang (endar á ngrok-free.app eða ngrok-free.dev) sem helst óbreytt þótt ngrok sé endurræst. Í vafra sýnir ngrok fyrst viðvörunarsíðu: smelltu á Visit. Matskerfið kallar beint á þjóninn og fær ekki þá síðu.

Þú getur líka notað connect, sem ræsir þjóninn á bak við Cloudflare-göng (þarf cloudflared). Stöðvaðu run fyrst því að connect ræsir þjóninn sjálft á gátt 8000:

python gki.py connect                     # sýnir opinbert vistfang og API-lykil; hafðu opið
python gki.py check https://<vistfang>    # í öðrum glugga

Vistfangið sem endar á trycloudflare.com breytist í hvert sinn sem connect er ræst. Hvaða opinbera HTTPS-hýsing sem er virkar líka: eigin þjónn eða skýjaþjónusta eða Docker á bak við HTTPS.

05

Sendu inn á vefsíðunni

  • Skráðu þig inn og gakktu í lið 2027.
  • Settu upp aðgangslykil fyrir tækið á síðunni fyrir sendingar. Fyrst staðfestirðu lykilorðið þitt (eða kóða sem við sendum þér í tölvupósti ef þú skráir þig inn með Google).
  • Veldu verkefni og Prófun, límdu inn grunnvistfangið og API-lykilinn og staðfestu með aðgangslyklinum.

Sláðu aðeins inn grunnvistfangið: https:// og heiti hýsilsins, án slóðar (ekki …/predict), án annarrar gáttar en 443 og án ?, #, notandanafns eða lykilorðs. Vistföng á einka- eða staðarneti eru ekki leyfð.

Liðsmaður tekur þetta skref. Aðgangslykillinn staðfestir að aðgangur liðsmanns hafi samþykkt matið en sannar ekki hver skrifaði lausnina. Forritunartól með gervigreind geta undirbúið vistfangið og lykilinn en liðsmaður sendir inn.

Haltu þjóninum gangandi þar til matinu er lokið.

06

Reglur sem skipta máli

  • Sendingar í prófun eru takmarkaðar á dag fyrir hvert lið og verkefni. Síðan fyrir sendingar sýnir hve margar eru eftir og talningin endurstillist kl. 00:00 UTC.
  • Villur sem stafa af vefsíðunni eða matskerfinu teljast ekki með.
  • Hvert lið getur aðeins haft eitt mat í bið eða keyrslu í hverju verkefni.
  • Í lokaprófi fær hvert lið eina tilraun í hverju verkefni. Tilraunin telst notuð þegar matið er ræst, nema matskerfið hafni því áður en það hefur samband við þjóninn.
  • Stig úr lokaprófi eru falin þar til úrslit eru birt.
  • Þjónninn fær aldrei að vita hvort beiðni tilheyrir prófun eða lokaprófi.

07

Algeng vandamál

Vefsíðan nær ekki sambandi við þjóninn
localhost er ekki opinbert vistfang. Notaðu ngrok, connect eða hýstan þjón og opnaðu <vistfang>/health af öðru neti, til dæmis í síma með slökkt á Wi-Fi.
Vistfanginu er hafnað
Sláðu aðeins inn grunnvistfangið sem byrjar á https://, á gátt 443 og án slóðar, ?, #, notandanafns eða lykilorðs. Vistföng á einka- eða staðarneti eru ekki leyfð. Ef heiti hýsilsins finnst ekki kemur fram villa um það á forminu: athugaðu vistfangið og hvort ngrok eða connect sé enn í gangi.
401 Invalid API key
Límdu inn nákvæmlega lykilinn úr .env eða úr úttaki connect, án gæsalappa og án orðsins Bearer.
422-villa
Beiðnin passar ekki við forritaskilin. Keyrðu python gki.py test og berðu saman við sýnidæmin í fixtures/.
500-villa
Kóðinn þinn kastaði villu, skilaði röngum fjölda svara eða ógildu úttaki. Skoðaðu gluggann þar sem þjónninn keyrir.
Tíminn rennur út eða göngin rofna
Gættu þess að tölvan fari ekki í dvala, hladdu líkaninu inn við ræsingu en ekki við hverja beiðni og svaraðu innan tímamarka verkefnisins.
Mat situr fast eða brást okkar megin
Geymdu auðkenni sendingarinnar og hafðu samband við skipuleggjendur á Discord. Skipuleggjendur geta veitt nýja tilraun í lokaprófi ef staðfest er að bilun hafi orðið í innviðum.
Fyrir lokapróf
Keyrðu prófun fyrst og notaðu hýsingu sem helst uppi allt matið. Göngin lokast þegar ngrok eða connect er stöðvað og ókeypis áskrift ngrok hefur mánaðarleg hámörk á fjölda beiðna og gagnamagn.

Spurt og svarað

Tæknilegar spurningar

Hvað er líkan?

Líkan er kerfi sem býr til úttak út frá inntaki, til dæmis stórt tungumálalíkan eins og ChatGPT eða einfalt línulegt fall. Flest líkön eru þjálfuð á pörum af inntaki og væntu úttaki. Við þjálfun er tapfall lágmarkað svo að spár líkansins verði sem næst væntu úttaki.

Hvernig er frammistaða líkana mæld?

Með mælikvarða sem er reiknaður á gögnum sem líkanið hefur ekki séð. Algengastur er nákvæmni, það er hlutfall réttra spáa. Aðrir eru til dæmis meðalfervik (MSE), F1-gildi og AUC. Mælikvarði hvers verkefnis er birtur með verkefninu.

Hvað eru forritaskil og af hverju notar keppnin þau?

Forritaskil (e. API) eru samkomulag um það hvernig forrit skiptast á beiðnum og svörum, oftast á JSON-sniði yfir HTTPS. Þjónninn þinn býður upp á forritaskil og matskerfið sendir þjóninum falin inntök og reiknar stig út frá svörunum. Byrjunarkóðinn sér um forritaskilin og þú þarft aðeins að skrifa kóða líkansins.

Hvað er API-lykillinn?

Leynilegur lykill sem matskerfið sendir með hverri beiðni svo að þjónninn viti að beiðnin sé ósvikin. python gki.py setup býr hann til en skipuleggjendur úthluta aldrei lyklum. Hann er geymdur í .env. Settu hann aldrei í git eða spjall og sláðu hann aðeins inn á síðunni fyrir sendingar.

Af hverju get ég ekki bara hlaðið líkaninu upp?

Liðin nota ólík forritunarmál, forritasöfn og vélbúnað og það yrði hægt og brothætt að keyra þetta allt hjá okkur. Með forritaskilum þarf matskerfið aðeins vistfangið og lykilinn og þú hefur fulla stjórn á kóðanum. Svona eru líkön líka oftast gerð aðgengileg í atvinnulífinu.

Hvað eru göng og hvað gerir gki.py connect?

Göng gefa þjóni á tölvunni þinni opinbert HTTPS-vistfang án þess að breyta þurfi stillingum beinisins. Við mælum með ngrok: ngrok http 8000 beinir föstu ngrok-vistfangi þínu á þjóninn sem run ræsir. Þú getur líka notað connect, sem ræsir þjóninn og Cloudflare-göng með cloudflared og sýnir svo vistfangið og lykilinn. Það vistfang virkar aðeins meðan connect keyrir og breytist í hvert sinn sem það er ræst.

Má ég keyra þjóninn á fartölvunni minni?

Já. Gættu þess að tölvan fari ekki í dvala og sé í hleðslu og nettengd þar til matinu er lokið. Fyrir lokapróf skaltu nota hýsingu sem helst uppi allt matið.

Af hverju þarf vistfangið að vera opinbert HTTPS-vistfang?

Matskerfið keyrir í skýinu og nær hvorki í localhost né einkanet. HTTPS dulkóðar lykilinn og svörin á leiðinni. Formið tekur aðeins við grunnvistfangi á gátt 443 og matskerfið bætir sjálft við slóðum forritaskilanna.

Hvað gerir aðgangslykillinn?

Samþykkja þarf hvert mat með aðgangslykli á aðgangi liðsmanns á vefsíðunni, fyrir verkefnið, gagnasafnið, vistfangið og lykilinn. Hann staðfestir að aðgangur liðsmanns hafi samþykkt matið en sannar ekki hver skrifaði lausnina. Skrefið er handvirkt af ásettu ráði: forritunartólið getur undirbúið vistfangið og lykilinn og liðsmaður sendir inn.

Hvað telst með í daglegu hámarki í prófun?

Allar sendingar í prófun sem liðið ræsir í verkefninu, líka þær sem eru enn í bið eða keyrslu. Villur sem stafa af vefsíðunni eða matskerfinu teljast ekki með. Síðan fyrir sendingar sýnir hve margar eru eftir og talningin endurstillist kl. 00:00 UTC.