Þrjú raunveruleg gervigreindarverkefni
Lærðu með því að búa til líkön.
Þetta sögðu þátttakendur í fyrra
Það var áhugavert að sjá alvöru dæmi um nýtingu gervigreindar sem er ekki chatbot / wrapper utan um ChatGPT.
Mikil æfing í stemningsforritun (e. vibe coding).
Báðir viðburðir voru bara virkilega vel heppnaðir.
Veit meira um gervigreind og þekki fleira fólk.
Mjög fín keppni, takk fyrir að halda hana!
Frá keppendum 2026 á LinkedIn
Verðlaun
- 2.000.000 kr. í peningaverðlaun í boði Íslandsbanka og Landsvirkjunar
- 500.000 / 300.000 / 200.000 kr. fyrir 1.–3. sæti í hvorum flokki
- Sumarstörf hjá Íslandsbanka og Fenris Creations
- Skrifstofuaðstaða í sex mánuði í boði Vísindagarða Háskóla Íslands fyrir efsta lið opna flokksins
- Miðar á UTmessuna frá Ský
Verðlaunin eru ákveðin áður en keppnin hefst og breytast ekki á meðan hún stendur. Þátttakendur þurfa að vera 16 ára eða eldri. Verðlaun fá aðeins lið þar sem allir liðsmenn búa á Íslandi eða hafa íslenska kennitölu. Keppnisreglur
Afritar kvaðningu (e. prompt) með upplýsingum um keppnina. Límdu hana inn í ChatGPT, Claude eða annað gervigreindarforrit.
Er þetta fyrir mig?Markmiðin okkar
Lærdómur
Hvert lið lærir eitthvað nýtt um gervigreind, gögn, þjálfun líkana og forritaskil.
Gervigreind í íslensku atvinnulífi
Raunveruleg verkefni frá íslenskum fyrirtækjum sýna hvernig gervigreind nýtist hér á landi.
Tengslamyndun
Nemendur, áhugafólk og sérfræðingar kynnast og deila reynslu sinni.
Viðurkenning
Bestu liðin fá viðurkenningu sem styrkir ferilskrána og nýtist í umsóknum um framhaldsnám og störf.
Skemmtun
Keppnin lífgar upp á skammdegið í janúar og keppendur eignast góðar minningar.
Verkefnin birt eftir
Setning kl. 17:00
Keppnin hefst kl. 20:00 að íslenskum tíma (UTC) miðvikudaginn 13. janúar 2027.
Keppni
13.–20. janúar 2027
Skráningu lýkur kl. 20:00 mánudaginn 18. janúar. Eftir það er ekki hægt að breyta liðum og lokaprófið opnast.
Nánar um keppnina- Háskólaflokkur: Háskólanemar á Íslandi eða erlendis og framhaldsskólanemar á Íslandi
- Opinn flokkur: Öll önnur lið
- Allt að þriggja manna lið
- 3 verkefni: Skoffín, Huldukona og Nykur
- Keppnin fer fram á netinu. Þú getur líka unnið í nýsköpunarsetri Vísindagarða.
Tímasetningar
Allir tímar eru að íslenskum tíma, sem er sá sami og UTC.
- Setning keppninnar (e. kickoff)
- miðvikudaginn 13. janúar 2027 kl. 17:00–19:00
- Keppnin hefst og verkefnin eru birt
- miðvikudaginn 13. janúar 2027 kl. 20:00
- Opnað fyrir lokapróf og lokað fyrir skráningu og breytingar á liðum
- mánudaginn 18. janúar 2027 kl. 20:00
- Póstur til 20 efstu liða hvors flokks (sjá 8.1)
- þriðjudaginn 19. janúar 2027 kl. 20:00
- Keppni lýkur
- miðvikudaginn 20. janúar 2027 kl. 20:00
- Frestur til að setja hlekk á opið kóðasafn á liðssíðuna, skilyrði fyrir verðlaunum (sjá 10.4)
- miðvikudaginn 20. janúar 2027 kl. 23:59
- Verðlaunaafhending í Grósku
- föstudaginn 22. janúar 2027 kl. 15:30–17:00
Verðlaunaafhending í Grósku
22. janúar 2027 kl. 15:30–17:00
- Matur í boði
- Erindi frá fyrirtækjum sem nota gervigreind
- Tækifæri til að kynnast fólki úr atvinnulífinu
Nýjar verkefnalýsingar verða birtar kl. 20:00 miðvikudaginn 13. janúar 2027.
Keppnisverkefni 2027
Ertu að leita að eldri verkefnalýsingum? Veldu 2026 hér fyrir ofan.
Verkefni
Nánar síðarSkoffín
Verkefnalýsing, gögn og mælikvarði verða birt kl. 20:00 miðvikudaginn 13. janúar 2027.
Meira um skoffíniðVerkefni
Nánar síðarHuldukona
Verkefnalýsing, gögn og mælikvarði verða birt kl. 20:00 miðvikudaginn 13. janúar 2027.
Meira um huldukonunaVerkefni
Nánar síðarNykur
Verkefnalýsing, gögn og mælikvarði verða birt kl. 20:00 miðvikudaginn 13. janúar 2027.
Meira um nykurinnÞú þjálfar þitt eigið líkan á raunverulegum gögnum.
Discord
Vertu með á Discord
Discord-þjónn GKÍ er helsti samskiptavettvangur keppninnar. Við mælum eindregið með því að þú gangir í hann.
- Finndu liðsfélaga eða lið sem vantar fleiri í hópinn.
- Fylgstu með fréttum og tilkynningum á meðan keppnin stendur yfir.
- Á þjóninum er líka memes-rás þar sem mikið af fjörinu fer fram.
- Spurningar um verkefni eða vandræði með innsendingu eiga heima á Discord en ekki í tölvupósti. Þá sjá aðrir með sömu spurningu svarið líka.
- Ef þú vilt ná í skipuleggjendur í einrúmi skaltu skrifa í #hafa-samband á þjóninum en ekki senda einkaskilaboð á persónulega Discord-reikninga okkar.
- Við viljum svara spurningum þínum og hjálpa eins mikið og við getum, sérstaklega ef þetta er fyrsta keppnin þín eða ef vélnám er nýtt fyrir þér.
Viðburðir og aðstoð
- Setning keppninnar og verðlaunaafhending fara fram á staðnum en verðlaunaafhendingunni er líka streymt á netinu. Aðstoð er veitt á Discord alla keppnina.
- Á setningunni kynna samstarfsfyrirtækin verkefnin sín og gefa innsýn í það hvernig best er að leysa þau.
- Á keppnisstaðnum eru 20 NVIDIA DGX Spark-tölvur sem lið geta fengið að láni, ein á hvert lið. Hægt er að biðja um tölvu á Discord. Lið sem hafa notað tölvu í færri daga ganga fyrir. Ef dagarnir eru jafnmargir fær það lið tölvuna sem bað fyrst um hana.
- Tengst er með SSH-lykli (e. SSH key) á þráðlausu neti (e. Wi-Fi) keppnisstaðarins og því þarf að mæta á staðinn. Lið eru beðin um að láta vita þegar þau þurfa ekki lengur á tölvunni að halda. Nánari leiðbeiningar verða birtar síðar.
Skráning á setninguna er ekki skráning í keppnina.
Opinn kóði og lýsing á lausn
Lið sem vill vinna til verðlauna þarf að birta kóðann sinn í opinberu kóðasafni á GitHub með opnu hugbúnaðarleyfi, til dæmis MIT, og stutta og skýra lýsingu á lausn sinni með hlekk úr README-skránni.
Undirbúðu þig fyrir 2027
Notaðu sama aðgang milli ára og staðfestu síðan þátttöku í næstu keppni.
Samstarfsaðilar
Spurt og svarað
Þarf ég reynslu af gervigreind til að taka þátt?
Nei, keppnin er bæði fyrir byrjendur og fólk með reynslu. Þú færð byrjunarkóða og grunnlíkön (e. baselines) til að koma þér af stað.
Kostar eitthvað að taka þátt?
Nei. Þátttaka er ókeypis.
Hvar fer keppnin fram?
Keppnin fer fram rafrænt. Setning keppninnar verður 13. janúar 2027 kl. 17:00 og staðsetningin birtist þegar þú skráir þig á Luma.
Hver er munurinn á háskólaflokki og opnum flokki?
Háskólaflokkur er fyrir nemendur í háskóla, á Íslandi eða erlendis, og í framhaldsskóla á Íslandi. Opni flokkurinn er fyrir öll önnur lið, til dæmis lið fagfólks og áhugafólks. Verðlaun í báðum flokkum fá aðeins lið þar sem allir liðsmenn búa á Íslandi eða hafa íslenska kennitölu. Lið sem uppfylla það ekki geta samt keppt.
Hver eru verðlaunin?
Í hvorum flokki fá þrjú efstu liðin peningaverðlaun, 500.000 kr. fyrir 1. sæti, 300.000 kr. fyrir 2. sæti og 200.000 kr. fyrir 3. sæti. Það gerir samtals 1.000.000 kr. í hvorum flokki og 2.000.000 kr. alls. Peningaverðlaunin eru í boði Íslandsbanka og Landsvirkjunar. Efstu lið beggja flokka fá einnig miða á UTmessuna frá Ský. Íslandsbanki og Fenris Creations bjóða sumarstörf. Þrjú efstu lið háskólaflokks fara í viðtöl og fyrirtækin ráða í störfin úr þeim hópi. Efsta lið opna flokksins fær skrifstofuaðstöðu í sex mánuði í boði Vísindagarða Háskóla Íslands. Verðlaun fá aðeins lið þar sem allir liðsmenn búa á Íslandi eða hafa íslenska kennitölu. Lið sem vill vinna til verðlauna þarf líka að birta kóðann sinn í opinberu kóðasafni á GitHub ásamt stuttri lýsingu á lausninni, á HTML-síðu eða í Markdown-skrá. Liðið setur hlekk á kóðasafnið á liðssíðuna sína í síðasta lagi miðvikudaginn 20. janúar 2027 kl. 23:59, sjá „Þurfum við að deila kóðanum okkar?“. Verðlaunin eru ákveðin áður en keppnin hefst og breytast ekki á meðan hún stendur.
Ég fékk ekki staðfestingarpóstinn. Hvað á ég að gera?
Athugaðu ruslpóstinn og ýttu síðan á „Senda kóða aftur“ á staðfestingarsíðunni. Tölvupósturinn getur tekið allt að einni mínútu að berast. Ef þú hefur lokað síðunni skaltu skrá þig inn með netfangi og lykilorði og þá sendum við þér nýjan kóða. Ef ekkert berst skaltu hafa samband við okkur á contact@gki.is.
Leiðbeiningar um innsendingar
Svona seturðu upp, prófar og sendir inn lausn í GKÍ 2027.
POST /predict/<verkefni> Authorization: Bearer <API-lykill> {"requestId": "r-17", "items": [{"id": "a1", "input": {"patch": "…"}}]}
{"requestId": "r-17",
"predictions": [{"id": "a1",
"output": 25}]}Dæmi: vistgerðaflokkunin frá 2026 á sniði 2027Prófun og lokapróf
Prófun (e. validation) er til æfinga. Niðurstöður lokaprófs (e. final test) ráða úrslitum um verðlaun og stigin verða falin þar til úrslit eru kynnt á verðlaunaafhendingunni.
Prófun
Hvert lið má senda inn allt að 20 lausnir á dag í hverju verkefni, alla vikuna. Stigin birtast strax.
Lokapróf
Hvert lið fær eina tilraun í hverju verkefni.
Um okkur
Gervigreindarkeppni Íslands (GKÍ) er haldin af félagi sem ekki er rekið í hagnaðarskyni.
Af hverju bjuggum við þetta til?
Við erum vinahópur sem hefur tekið þátt í mörgum keppnum, allt frá stærðfræðikeppnum í grunnskóla til róbótahakkaþona. Við höfum lært ótrúlega mikið af þessum keppnum og fáar leiðir eru betri til að læra nýtt efni hratt. Maður kafar djúpt í vandamál, prófar fullt af gölnum lausnum sem maður hefur aldrei reynt áður og kemst að því hvað virkar í raun. Þetta er allt öðruvísi en skólaverkefni þar sem kennarinn hefur þegar matað mann á öllu sem þarf til að leysa verkefnin. Á Íslandi var engin árleg keppni eins og þær sem við lærðum af og því ákváðum við að halda slíka keppni sjálfir. Við teljum að keppnin sé skemmtileg og hagnýt leið til að efla gervigreindarsamfélagið á Íslandi.
Hvað er öðruvísi við GKÍ?
- Skýr markmið. Þú veist nákvæmlega hvað þú átt að gera. Þú þarft ekki að finna þér hugmynd að verkefni.
- Raunveruleg vandamál úr atvinnulífinu. Hvert verkefni byggir á vandamáli frá samstarfsaðila. Þú leysir því alvöru verkfræðileg viðfangsefni, ekki tilbúin dæmi.
- Þinn eigin þjónn. Þú keyrir lausnina á þjóni sem matskerfið okkar kallar á yfir HTTPS. Kóðinn þarf að virka víðar en á tölvunni þinni.
- Aðeins tölur, ekkert bull. Allt er dæmt megindlega. Engar kynningar, engar frumgerðir og engir dómarar sem velja eftir eigin smekk.
- Heil vika. Þú hefur tíma til að prófa þig áfram, gera mistök og reyna aðrar leiðir.
Keppnin í tölum
- Keppnir
- 1
- Lið
- 81
- Þátttakendur
- 172
- Verkefni
- 3
- Innsendingar
- 3.589
- Meðalfjöldi innsendinga á hvert verkefni
- 1.196
- Meðalfjöldi innsendinga á hvert lið
- 44
Þátttakendur eru allir liðsmenn í lokastöðu hverrar keppni.
Hugsunin bak við merkið
Merkið okkar sækir innblástur í taugatengsl gervigreindar og byggir á grind af punktum sem tengjast. Við nánari skoðun má greina skammstöfun keppninnar, GKÍ, í tengingunum. Hugmyndin að baki vefnum og öllu útlitinu er hálendi Íslands, skærgrænn mosi á hrauni og svörtum sandi. Þaðan koma litirnir, dökki grunnurinn og mosagræni liturinn, og verurnar þrjár sem tákna verkefnin eru hulduverur á hálendinu, sóttar í íslenskar þjóðsögur.
Mosagræni liturinn minnir líka á græna letrið á gömlum tölvuskjáum og tengir þannig saman íslenska náttúru og stafræna tækni. Hálendið er víðáttumikið, óbeislað og dularfullt. Óvissan er hluti af upplifuninni, eins og í gervigreind sem er enn að miklu leyti ókannað land.
Kærar þakkir til Guðrúnar Söru Örnólfsdóttur fyrir hönnun og útfærslu.












