Er þetta fyrir mig?
Stutt svör við því sem fólk spyr oftast áður en það skráir sig í Gervigreindarkeppni Íslands.
Hver getur tekið þátt?
Þátttakendur þurfa að vera 16 ára eða eldri. Háskólaflokkur er fyrir nemendur í háskóla, á Íslandi eða erlendis, og í framhaldsskóla á Íslandi, en opni flokkurinn er fyrir öll önnur lið. Verðlaun fá aðeins lið þar sem allir liðsmenn búa á Íslandi eða hafa íslenska kennitölu.
Hvað kostar þetta?
Ekkert. Þátttaka er ókeypis.
Hvar fer keppnin fram?
Keppnin fer fram á netinu og þú getur unnið að lausnunum hvar sem þú ert.
Þarf ég að eiga lið?
Nei. Keppt er í allt að þriggja manna liðum og hægt er að keppa einn. Eftir skráningu geturðu líka sett þig á listann „Í leit að liði“ og fundið liðsfélaga þar.
Hvað tekur þetta mikinn tíma?
Keppnin stendur yfir í eina viku, frá kl. 20:00 miðvikudaginn 13. janúar til kl. 20:00 miðvikudaginn 20. janúar 2027. Hún fer fram á netinu og þú ræður hvenær þú vinnur að lausnunum.
Þarf ég að vera sérfræðingur í gervigreind?
Nei. Þú þarft ekki reynslu af gervigreind til að taka þátt. Undirbúningssíðan sýnir ókeypis námsleið frá fyrstu línunum í Python að fyrsta líkaninu sem þú sendir inn.
Hvað geri ég ef ég festist?
Spurðu á Discord-þjóni keppninnar. Þú getur líka sent skipuleggjendum einkaskilaboð í #hafa-samband á Discord eða póst á contact@gki.is.