Fara beint í efni
🚀
Setning GKÍ 2027
13. jan • 17:00–19:00
Gervigreindar­keppni
Íslands

13.–20. janúar
2027

Lærðu gervigreind og undirbúðu þig fyrir keppnina

Hér er ókeypis námsleið fyrir byrjendur sem vilja læra gervigreind og vélnám frá grunni. Þú þarft enga reynslu til að taka þátt í keppninni. Námsleiðin nær frá fyrstu línunum í Python að fyrsta líkaninu sem þú sendir inn. Taktu skrefin í röð eða slepptu því sem þú kannt nú þegar.

Námsefnið er ókeypis en flest af því er á ensku.

Námsleiðin

  1. Grunnatriði í Python

    Flest verkfæri í vélnámi eru skrifuð fyrir Python. Byrjaðu á breytum, lykkjum og föllum og lærðu svo að lesa og vinna með gögn í töflum.

  2. Fyrstu líkönin

    Lærðu að skipta gögnum í þjálfunar- og prófunargögn, þjálfa einföld líkön með scikit-learn og meta þau á gögnum sem líkanið hefur ekki séð.

  3. Djúpnám

    Tauganet ráða við flóknari gögn en einföld líkön. Námskeið MIT er góður inngangur að djúpnámi og PyTorch er algengasta verkfærið.

  4. Æfðu þig á raunverulegum verkefnum

    Besta æfingin er að leysa verkefni með raunverulegum gögnum og bera sig saman við aðra. Prófaðu Kaggle-keppnir og verkefni Gervigreindarkeppni Íslands 2026.

  5. Undirbúðu innsendingu

    Í keppninni keyrir liðið líkanið sitt sem þjón og matskerfið sendir beiðnir á hann. Lestu leiðbeiningarnar um innsendingar og prófaðu að keyra einfaldan þjón áður en keppnin hefst.

Námskeið sem undirbúa þig

Ef þú hefur lokið einhverju þessara námskeiða í Háskóla Íslands eða Háskólanum í Reykjavík, eða ert í því núna, þekkirðu flest það sem keppnin byggir á. Ef þér líkaði námskeiðið muntu líklega hafa gaman af keppninni.

Námskeið merkt stjörnu eru inngangsnámskeið sem við mælum með að taka fyrst. Hin námskeiðin eru sérhæfðari og byggja á þeim.

Námskeiðin eru úr kennsluskrám skólanna fyrir skólaárið 2026–2027. Þau eru ekki skilyrði fyrir þátttöku.

Keppnin 2027

Gervigreindarkeppni Íslands fer fram á netinu 13.–20. janúar 2027. Verkefnin þrjú, Skoffín, Huldukona og Nykur, eru birt kl. 20:00 13. janúar 2027.