Spurt og svarað
Svör við algengum spurningum um keppnina, skráningu, aðgang og innsendingar.
Almennar spurningar
Keppnin
Þarf ég reynslu af gervigreind til að taka þátt?
Nei, keppnin er bæði fyrir byrjendur og fólk með reynslu. Þú færð byrjunarkóða og grunnlíkön (e. baselines) til að koma þér af stað.
Kostar eitthvað að taka þátt?
Nei. Þátttaka er ókeypis.
Hvar fer keppnin fram?
Keppnin fer fram rafrænt. Setning keppninnar verður 13. janúar 2027 kl. 17:00 og staðsetningin birtist þegar þú skráir þig á Luma.
Verður streymt frá setningu keppninnar og verðlaunaafhendingunni?
Já, frá verðlaunaafhendingunni. Henni verður streymt á netinu svo að þau sem komast ekki á staðinn geti líka fylgst með. Við birtum hlekk á streymið á Discord áður en hún hefst. Setningu keppninnar verður ekki streymt því við viljum hitta ykkur á staðnum. Glærurnar frá setningunni verða birtar á Discord eftir viðburðinn.
Hver er munurinn á háskólaflokki og opnum flokki?
Háskólaflokkur er fyrir nemendur í háskóla, á Íslandi eða erlendis, og í framhaldsskóla á Íslandi. Opni flokkurinn er fyrir öll önnur lið, til dæmis lið fagfólks og áhugafólks. Verðlaun í báðum flokkum fá aðeins lið þar sem allir liðsmenn búa á Íslandi eða hafa íslenska kennitölu. Lið sem uppfylla það ekki geta samt keppt.
Er aldurstakmark?
Já, þátttakendur þurfa að vera 16 ára eða eldri. Þú staðfestir það með haki þegar þú skráir þig. Fyrir keppnina 2027 þarf þátttakandi að vera fæddur árið 2010 eða fyrr. Ef þú fæddist 2011 eða síðar geturðu sent skipuleggjendum einkaskilaboð í #hafa-samband á Discord eða póst á contact@gki.is.
Hver eru verðlaunin?
Í hvorum flokki fá þrjú efstu liðin peningaverðlaun, 500.000 kr. fyrir 1. sæti, 300.000 kr. fyrir 2. sæti og 200.000 kr. fyrir 3. sæti. Það gerir samtals 1.000.000 kr. í hvorum flokki og 2.000.000 kr. alls. Efstu lið beggja flokka fá einnig miða á UTmessuna og efsta lið háskólaflokks fær sumarstarf hjá Íslandsbanka. Efsta lið opna flokksins fær skrifstofuaðstöðu í sex mánuði. Verðlaun fá aðeins lið þar sem allir liðsmenn búa á Íslandi eða hafa íslenska kennitölu. Lið sem vill vinna til verðlauna þarf líka að birta kóðann sinn í opinberu kóðasafni á GitHub ásamt stuttri lýsingu á lausninni, á HTML-síðu eða í Markdown-skrá. Liðið setur hlekk á kóðasafnið á liðssíðuna sína í síðasta lagi miðvikudaginn 20. janúar 2027 kl. 23:59, sjá „Þurfum við að deila kóðanum okkar?“. Verðlaunin eru ákveðin áður en keppnin hefst og breytast ekki á meðan hún stendur.
Hvaða tól má ég nota?
Þú mátt nota hvaða forritunarmál, hugbúnaðarsöfn, forþjálfuð líkön (e. pretrained models) eða forritaskil (e. API) sem er, nema reglur verkefnisins banni það. Lokalíkanið þarf að skila svari innan tímamarka sem hvert verkefni setur.
Hvernig sendi ég inn lausn?
Keyrðu líkanið á þjóni með opinberri HTTPS-vefslóð, annaðhvort á eigin tölvu í gegnum göng (e. tunnel), til dæmis ngrok, eða á hýstum þjóni. Síðan slærðu inn vefslóðina og API-lykilinn á vefsíðunni og staðfestir með aðgangslyklinum þínum. Þá kallar matskerfið á þjóninn. Haltu honum gangandi þar til matinu er lokið.
Þurfum við að deila kóðanum okkar?
Aðeins til að vinna til verðlauna, ekki til að taka þátt. Lið sem vill vinna til verðlauna þarf að birta kóðann sinn í opinberu kóðasafni á GitHub með opnu hugbúnaðarleyfi, til dæmis MIT, og stutta lýsingu á lausninni með hlekk úr README-skránni. Lýsingin getur verið HTML-síða sem hýst er hvar sem er, til dæmis án endurgjalds á GitHub Pages, eða Markdown-skrá í kóðasafninu. Liðið setur hlekk á kóðasafnið á liðssíðuna sína í síðasta lagi miðvikudaginn 20. janúar 2027 kl. 23:59 og kóðasafnið þarf þá að vera opinbert. Eftir að keppni lýkur getur hver sem er séð hlekkinn. Kóðasafnið á að vera áfram opinbert og GKÍ geymir afrit af því. Gögn verkefnanna mega aldrei fara í opinbert kóðasafn. Við hvetjum líka önnur lið til að deila kóðanum sínum. Nánar er sagt frá þessu í keppnisreglunum.
Hvað eru Skoffín, Huldukona og Nykur?
Verkefnin þrjú heita Skoffín, Huldukona og Nykur eftir verum úr íslenskum þjóðsögum. Nöfnin haldast á milli ára en verkefnin sjálf eru ný á hverju ári. Hver vera táknar eitt verkefni og við reynum að tengja sögu hvers verkefnis við veruna. Röðin segir ekkert um það hversu erfið verkefnin eru. Nánar má lesa um verurnar þrjár.
Breytast verkefnin á milli ára?
Já, verkefnin eru ný á hverju ári. Árið 2026 voru þau á sviði máltækni, myndgreiningar og tímaraðagreiningar. Verkefnin 2027 verða birt 13. janúar 2027 kl. 20:00.
Hvernig get ég undirbúið mig fyrir keppnina?
Skoðaðu verkefnin úr fyrstu Gervigreindarkeppni Íslands árið 2026 og prófaðu byrjunarkóðann og grunnlíkönin til að undirbúa þig.
Skráning og aðgangur
Skrái ég mig inn með Google eða lykilorði?
Notaðu sömu leið og þú notaðir við nýskráningu. Ef þú skráðir þig með Google skaltu ýta á „Halda áfram með Google“ á innskráningarsíðunni. Ef þú vilt frekar nota lykilorð geturðu valið það með „Gleymt lykilorð?“ á innskráningarsíðunni. Þá aftengist Google en þú getur tengt það aftur á prófílnum þínum.
Ég fékk ekki staðfestingarpóstinn. Hvað á ég að gera?
Athugaðu ruslpóstinn og ýttu síðan á „Senda kóða aftur“ á staðfestingarsíðunni. Tölvupósturinn getur tekið allt að einni mínútu að berast. Ef þú hefur lokað síðunni skaltu skrá þig inn með netfangi og lykilorði og þá sendum við þér nýjan kóða. Ef ekkert berst skaltu hafa samband við okkur á contact@gki.is.
Ég skráði mig með röngu netfangi. Hvernig laga ég það?
Ef þú hefur ekki staðfest netfangið enn, ýttu á „Breyta netfangi“ á staðfestingarsíðunni. Leiðréttu netfangið, sláðu lykilorðið inn aftur og skráðu þig. Þá er nýi kóðinn sendur á rétta netfangið. Eftir staðfestingu geturðu breytt netfanginu á prófílnum þínum.
Hvernig eyði ég aðganginum mínum? Hvað getur komið í veg fyrir það?
Ýttu á „Eyða aðgangi“ á prófílnum þínum. Það er ekki hægt á meðan keppnin stendur yfir eða á meðan þú ert í liði. Farðu því fyrst úr liðinu. Ef þú ert síðasti liðsmaðurinn er liðinu eytt þegar þú ferð úr því með „Eyða tómu liði“. Ef lausnir hafa verið sendar inn með aðganginum er ekki hægt að eyða honum, því niðurstöður keppninnar eru varðveittar. Hafðu samband við okkur á contact@gki.is ef þú getur ekki farið úr liðinu eða ef eitthvað annað kemur í veg fyrir eyðinguna.
Lið
Hve margir mega vera í liði og hvernig kemst ég í lið?
Keppt er í allt að þriggja manna liðum. Þú getur keppt án liðsfélaga, stofnað lið frá byrjun eða fundið liðsfélaga síðar. Þú gengur í lið með því að biðja um aðild og hver sem er í liðinu getur samþykkt beiðnina. Allir liðsmenn hafa sama hlutverk og geta samþykkt beiðnir um aðild, boðið liðsfélögum frá fyrri keppni og breytt upplýsingum um liðið.
Hvernig fjarlægi ég liðsmann úr liðinu?
Í þriggja manna liði geta hinir tveir liðsmennirnir kosið að fjarlægja þann þriðja. Ýttu á „Kjósa að fjarlægja“ við nafn liðsmannsins undir „Næsta keppni“ á prófílnum þínum. Ef hinn liðsmaðurinn kýs það líka innan 7 daga er sá þriðji fjarlægður strax og fær tölvupóst um það. Kosningin er aðeins opin fram að lokun skráningar 18. janúar kl. 20:00. Í tveggja manna liði getur enginn fjarlægt annan liðsmann. Þú getur líka farið úr liðinu með því að ýta á „Yfirgefa lið“ og stofnað nýtt lið. Ef upp kemur ágreiningur geturðu haft samband við okkur á contact@gki.is. Eftir lokun skráningar getur enginn farið úr liði fyrr en keppninni er lokið. Liðsmaður sem hættir að taka þátt eftir það er því áfram í liðinu.
Hvernig breyti ég nafni liðsins?
Hvaða liðsmaður sem er getur breytt nafni liðsins þar til lokað er fyrir skráningu. Ýttu á „Breyta liði“ undir „Næsta keppni“ á prófílnum þínum, breyttu nafninu og ýttu á „Vista“. Annað lið má ekki vera með sama nafn.
Get ég keppt í háskólaflokki ef aðeins hluti liðsins er skráður í nám?
Nei. Allir liðsmenn þurfa að uppfylla skilyrði háskólaflokks. Ef einn þeirra uppfyllir þau ekki keppir liðið í opnum flokki.
Um GKÍ
Hverjir standa að GKÍ?
Við erum vinahópur sem heldur keppnina, ekki fyrirtæki. Fyrsta keppnin var haldin í janúar 2026 og 7. ágúst 2026 stofnuðum við utan um hana félagasamtök sem eru ekki rekin í hagnaðarskyni (kt. 470826-1420). Nánar má lesa um hópinn á bak við keppnina.
Eru til aðrar keppnir af þessu tagi sem ég get tekið þátt í?
Já. Ísland er lítið samfélag og við viljum vinna saman. Keppnir af þessu tagi á Íslandi standa á þremur stoðum, hefðbundinni forritun, netöryggi og gervigreind. Í forritun kemur Keppnisforritunarfélag Íslands að Forritunarkeppni grunnskólanna og Forritunarkeppni framhaldsskólanna og sér um þátttöku Íslands í Ólympíuleikunum í forritun. Í netöryggi er Gagnaglíman (Netöryggiskeppni Íslands) árleg keppni á vegum Gagnaglímufélags Íslands. Hún er líka undankeppni fyrir Netöryggiskeppni Evrópu (ECSC) þar sem tíu manna landslið keppir fyrir hönd Íslands. Gervigreindarkeppni Íslands er þriðja stoðin.
Hvað þýðir merkið og af hverju mosagrænt?
Merkið sækir innblástur í taugatengsl gervigreindar og þar sem punktarnir tengjast má greina skammstöfunina GKÍ. Græni liturinn er sóttur í mosann sem vex á hrauni og sandi á hálendinu og í gamla græna tölvuskjái. Hálendið er víðáttumikið, hrátt og lítt kannað, eins og gervigreindin. Guðrún Sara Örnólfsdóttir hannaði merkið.
Tæknilegar spurningar
Hvað er líkan?
Líkan er kerfi sem býr til úttak út frá inntaki, til dæmis risamállíkan (e. large language model) eins og ChatGPT eða einfalt línulegt fall. Flest líkön eru þjálfuð á pörum af inntaki og væntu úttaki. Við þjálfun er tapfall (e. loss function) lágmarkað svo að spár líkansins verði sem næst væntu úttaki.
Hvernig er mælt hve gott líkan er?
Með mælikvarða sem er reiknaður á gögnum sem líkanið hefur ekki séð. Algengastur er hittni (e. accuracy), það er hlutfall réttra spáa. Aðrir eru til dæmis meðalfervik (e. mean squared error, MSE), F1-skor og AUC. Mælikvarði hvers verkefnis er birtur með verkefninu.
Hvað eru forritaskil og af hverju notar keppnin þau?
Forritaskil (e. API) eru samkomulag um það hvernig forrit skiptast á beiðnum og svörum, oftast á JSON-sniði yfir HTTPS. Þjónninn þinn býður upp á forritaskil og matskerfið sendir þjóninum falin inntök og reiknar stig út frá svörunum. Byrjunarkóðinn sér um forritaskilin og þú þarft aðeins að skrifa kóða líkansins.
Hvað er API-lykillinn?
Leynilegur lykill sem matskerfið sendir með hverri beiðni svo að þjónninn viti að beiðnin sé ósvikin. python gki.py setup býr hann til en skipuleggjendur úthluta aldrei lyklum. Hann er geymdur í .env. Settu hann aldrei í git eða spjall og sláðu hann aðeins inn á síðunni fyrir innsendingar.
Af hverju get ég ekki bara hlaðið líkaninu upp?
Liðin nota ólík forritunarmál, forritasöfn og vélbúnað og það yrði hægt og brothætt að keyra þetta allt hjá okkur. Með forritaskilum þarf matskerfið aðeins vefslóðina og lykilinn og þú hefur fulla stjórn á kóðanum. Svona eru líkön líka oftast gerð aðgengileg í atvinnulífinu.
Hvað eru göng og hvað gerir gki.py connect?
Göng gefa þjóni á tölvunni þinni opinbera HTTPS-vefslóð án þess að breyta þurfi stillingum beinisins. Við mælum með Cloudflare-göngum sem eru ókeypis og þurfa engan aðgang. Skipunin connect ræsir þjóninn og göngin með cloudflared og sýnir svo vefslóðina og lykilinn. Sú vefslóð virkar aðeins meðan connect keyrir og breytist í hvert sinn sem göngin eru endurræst. Einnig má nota ngrok með ókeypis aðgangi. Skipunin ngrok http 8000 beinir fastri ngrok-vefslóð þinni á þjóninn sem run ræsir. Þú getur líka sleppt göngunum og keyrt þjóninn á Azure Container Apps sem gefur honum https://-vefslóð. Veldu göng undir Gerðu þjóninn aðgengilegan.
Má ég keyra þjóninn á fartölvunni minni?
Já. Gættu þess að tölvan fari ekki í dvala og sé í hleðslu og nettengd þar til matinu er lokið. Fyrir lokapróf skaltu nota hýsingu sem helst uppi allt matið.
Af hverju þarf vefslóðin að vera opinber og nota HTTPS?
Matskerfið keyrir í skýinu og nær hvorki í localhost né einkanet. HTTPS dulkóðar lykilinn og svörin á leiðinni. Formið tekur aðeins við grunnvefslóð á gátt 443 og matskerfið bætir sjálft við slóðum forritaskilanna.
Hvað gerir aðgangslykillinn?
Liðsmaður samþykkir hvert mat með aðgangslyklinum sínum á vefnum. Samþykkið nær yfir verkefnið, gagnasafnið, vefslóðina og lykilinn. Aðgangslykillinn sýnir að aðgangur liðsmanns samþykkti matið en ekki hver skrifaði lausnina. Skrefið er handvirkt af ásettu ráði. Forritunartólið getur undirbúið vefslóðina og lykilinn en liðsmaður sendir inn.
Hvað telst með í daglegu hámarki í prófun?
Allar innsendingar í prófun sem liðið ræsir í verkefninu, líka þær sem eru enn í bið eða keyrslu. Villur sem stafa af vefsíðunni eða matskerfinu teljast ekki með. Síðan fyrir innsendingar sýnir hve margar eru eftir og talningin endurstillist kl. 00:00 UTC.