Verurnar þrjár
Verkefni keppninnar 2027, Skoffín, Huldukona og Nykur, heita eftir þremur verum úr íslenskri þjóðtrú. Hér segir frá því hvers konar verur þetta eru og hvaðan sögurnar af þeim koma.
Flestar sögurnar hér voru skráðar á 19. öld og Jón Árnason gaf þær út í safninu Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (Leipzig, 1862–1864). Sama veran getur verið ólík eftir því hver segir frá og hvar. Við segjum frá því þar sem sögnum ber ekki saman.
Verurnar þrjár eru líka hluti af útliti GKÍ. Á forsíðunni breytast þær hver í aðra, alltaf í sömu röð. Hvert verkefni keppninnar 2027 ber nafn einnar þeirra. Verkefnalýsingarnar verða birtar kl. 20:00 13. janúar 2027.
Skoffín
Kynjadýr af ref og ketti sem drepur með augnaráðinu.
Í safni Jóns Árnasonar er skoffín sagt afkvæmi tófu og kattar og er kötturinn móðirin. Í annarri sögn í sama safni klekst það úr eggi. Gamlir hanar áttu að verpa einu eggi, miklu minna en hænueggi, og úr því kemur meinvættur. Aðrir segja skoffín afkvæmi refs og tíkur. Í flestum sögnum er augnaráð þess svo banvænt að allt sem það lítur á fellur dautt.
Aðeins tvennt vinnur á því. Annað er að það sjái spegilmynd sína, hitt að skotið sé á það silfurhnöppum eftir að krossað hefur verið þrisvar fyrir byssukjaftinn.
Sagan
Skoffínið á kirkjuburstinni
Einu sinni bar svo við að fólk féll dautt hvert af öðru um leið og það gekk út úr kirkju að lokinni messu. Djákninn tók eftir þessu og stöðvaði fólkið. Hann batt spegil á langa stöng, stóð sjálfur inni í kirkjudyrunum og rétti stöngina upp með kirkjuþilinu þar til spegillinn náði upp fyrir burstina. Síðan bað hann alla að ganga út og engum varð meint af.
Skoffín hafði staðið uppi á kirkjuburstinni og séð alla sem út gengu, en þegar djákninn rétti upp spegilinn sá það spegilmynd sína, og það er slíkum kvikindum bráður bani.
Uppruni
Orðið skoffín er þekkt frá 18. öld og uppruni þess er óviss. Ásgeir Blöndal Magnússon segir í Íslenskri orðsifjabók að það sé efalítið tökuorð en óvíst hvaðan. Honum kemur í hug gríska sögnin skopeîn, „horfa, litast um“, því augnatillit skepnunnar var talið banvænt, en engar heimildir eru um slík tengsl. Í daglegu máli getur skoffín líka merkt flón og verið gæluorð um börn.
Skoffínið telst til óvættadýra, furðudýra sem talin eru hafa orðið til á ónáttúrulegan hátt. Í þeim hópi eru líka skuggabaldur og urðarköttur, sem drepa einnig með augnaráðinu. Líffræðingar benda þó á það á Vísindavefnum að kettir og refir geti ekki átt afkvæmi saman, enda hafa þeir ekki jafnmarga litninga.
Í keppninni
Skoffín er eitt þriggja verkefna Gervigreindarkeppni Íslands 2027. Síða verkefnisins
Huldukona
Kona af huldufólki.
Huldukona er kona af huldufólki, ósýnilegu fólki sem talið er búa í hólum og björgum. Í sögunum líkist huldufólk mönnum og lifir svipuðu lífi. Það heyjar, fer í kaupstað og eignast börn. Menn sjá það þó ekki nema það vilji sjálft láta sjá sig, eða ef þeir eru skyggnir.
Í langflestum sögum er það huldufólkið sem hefur frumkvæðið. Huldukonur biðja um mjólk handa börnunum sínum og huldumenn sækja mennskar konur til að hjálpa konum sínum að fæða. Þeir sem hjálpa huldufólki fá oft laun fyrir, en huldufólk varar fólk við eða hótar því ef því finnst gert á sinn hlut, til dæmis ef hróflað er við álagablettum. Einna mest ber á því um jólaleytið og nýárið.
Sagan
Stúlka hjálpar álfkonu í barnsnauð
Stúlka var eitt kvöld að taka inn þvott þegar maður kom til hennar og bað hana að koma með sér því mikið lægi við. Þau komu að hól í túninu, hóllinn opnaðist og maðurinn leiddi hana inn. Inni í hólnum lá kona á gólfinu í barnsnauð. Stúlkan hjálpaði henni og laugaði barnið. Maðurinn fékk henni glas með áburði til að bera á augu barnsins en bað hana að varast að láta hann í sín eigin augu. Hana langaði að vita hvað þetta þýddi og drap fingurgómnum á hægra auga sitt. Þá sá hún fjölda fólks í hinum enda baðstofunnar. Maðurinn þakkaði henni, sagði að hún yrði gæfukona og gaf henni eitthvað að skilnaði.
Seinna varð hún prestskona og hafði gagn af skyggninni, því hún gat hagað heyskapnum eftir búskap álfanna. Eitt sinn hitti hún álfamanninn í kaupstað og heilsaði honum. Honum varð bilt við og hann brá fingri í munn sér og síðan á auga hennar. Eftir það sá hún engan álf og var aldrei skyggn upp frá því.
Í sögunni er talað um álfa. Flestir nota orðin álfar og huldufólk um sömu verur.
Uppruni
Ein sögn í safni Jóns Árnasonar segir frá uppruna huldufólks. Guð bað Evu að sýna sér öll börnin sín, kembd og þvegin. Börnin voru mörg og hún nennti ekki að búa þau öll svo vel sem skyldi. Hún faldi því í helli þau börn sem henni þóttu ósjálegust og sagðist ekki eiga fleiri. Þá sagði guð að það sem hún hefði viljað hylja fyrir honum skyldi héðan í frá vera hulið henni og öllum niðjum hennar.
Orðið huldumaður sést ekki á bók fyrr en seint á 15. öld og huldufólk ekki fyrr en á 17. öld. Terry Gunnell þjóðfræðingur telur orðið huldufólk líklega vera veigrunaryrði. Með því megi tala um þessar verur án þess að nefna þær beint, líkt og þegar talað er um „the good people“ á Írlandi og í Skotlandi.
Í könnun frá 2023 sögðu 55,5% svarenda að huldufólk væri svipað mönnum að stærð og útliti. Í sömu könnun töldu 8,4% víst að huldufólk og álfar væru til og 26,7% töldu það óhugsandi, en flestir svöruðu einhvers staðar þar á milli.
Í keppninni
Huldukona er eitt þriggja verkefna Gervigreindarkeppni Íslands 2027. Síða verkefnisins
Nykur
Vatnahestur íslenskra þjóðsagna.
Nykur er líkastur hesti, oftast grár en stundum brúnn, en allir hófarnir snúa aftur. Hann heldur sig í ám og vötnum, þó sjaldan í straumhörðum ám, og jafnvel í sjó. Hann stendur spakur við vatnið og tælir menn til að fara á bak. Fari einhver á bak hleypur hann út í vatnið, leggst þar og dregur þá sem á honum sitja með sér niður.
Nykurinn þolir ekki að heyra nafn sitt eða nokkurt orð sem líkist því. Annað nafn hans er nennir, sem minnir á sögnina að nenna. Menn sögðu að nykurinn hneggjaði þegar ísinn brysti með miklum dunum á veturna.
Sagan
Nennir
Smalastúlka var að leita að fé og var orðin mjög lúin. Þá sá hún gráan hest og varð fegin. Hún hnýtti sokkabandinu sínu upp í hann, lagði svuntuna sína á hann, leiddi hann að þúfu og ætlaði á bak. En rétt í því sagði hún: „Ég trúi ég nenni þá ekki á bak.“ Þá tók hesturinn viðbragð, stökk út í vatn skammt frá og hvarf. Nú sá stúlkan að þetta hafði verið nykur, sem heitir öðru nafni nennir.
Jón Árnason segir söguna mjög algenga og sagða um nykra í ýmsum vötnum.
Nykurinn í Tjörninni
Önnur saga segir að nykur sé í Reykjavíkurtjörn annað árið en í Hafravatni hitt árið og fari á milli um undirgöng. Reykvíkingar þóttust heyra ógurlega bresti í Tjörninni þegar hún var ísilögð, en aðeins annað hvert ár. Þá var nykurinn að brjóta ísinn neðan frá.
Uppruni
Jón Árnason segir að trúin á nykra hafi verið um allt land og sögur um þá nálega í hverju héraði. Hún lifir í örnefnum. Nykurtjarnir eru á nokkrum stöðum, Nykurfoss er í Fáskrúðsfirði og Nykurvatn vestan Bustarfells í Vopnafirði.
Orðið er gamalt og á sér frændur í færeysku nykur, nýnorsku nykk, dönsku nøkke og fornensku nicor. Nicoras nefnast vatnaskrímslin sem Bjólfur berst við í Bjólfskviðu. Fyrstu ensku þýðendurnir kölluðu nykurinn „river-horse“ árið 1864 og þurftu að skýra orðaleikinn: „Nennir, or the one who feels inclined.“
Í keppninni
Nykur er eitt þriggja verkefna Gervigreindarkeppni Íslands 2027. Síða verkefnisins
Heimildir
Allt á þessari síðu byggir á þessum heimildum. Textar Jóns Árnasonar á Wikiheimild og Netútgáfunni eru með nútímastafsetningu.
Skoffín
- Jón Árnason, Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (1862–1864): „Skoffín og skuggabaldur“ (Wikiheimild)
- Jón Árnason, Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (1862–1864): „Skoffín, skuggabaldur og urðarköttur“ (Wikiheimild)
- Ásgeir Blöndal Magnússon, Íslensk orðsifjabók (1989): „skoffín“ (Árnastofnun)
- Rósa Þorsteinsdóttir, „Hvað er urðarköttur?“ Vísindavefurinn (2025)
- Jón Már Halldórsson og Jón Gunnar Þorsteinsson, „Eru skoffín og skuggabaldrar til í alvörunni?“ Vísindavefurinn (2003)
Huldukona
- Jón Árnason, Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (1862–1864): „Stúlka hjálpar álfkonu í barnsnauð“ (Netútgáfan)
- Jón Árnason, Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (1862–1864): „Tilorðning huldufólks“ (Netútgáfan)
- Jón Árnason, Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (1862–1864): „Jóla- og nýjársgleðir álfa“ (Wikiheimild)
- „Hver er munurinn á álfum og huldufólki?“ Vísindavefurinn (2016)
- Rósa Þorsteinsdóttir, „Hvernig var farið að því að hafa samband við huldufólk?“ Vísindavefurinn (2022)
- Terry Gunnell, „Hversu útbreidd er álfatrúin um heiminn?“ Vísindavefurinn (2008)
- Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, Könnun á íslenskri þjóðtrú og trúarviðhorfum (2023)
Nykur
- Jón Árnason, Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (1862–1864): „Nykur“ (Wikiheimild)
- Jón Árnason, Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (1862–1864): „Nennir“ (Wikiheimild)
- Jón Árnason, Íslenzkar þjóðsögur og æfintýri (1862–1864): „Nykur í Reykjavíkurtjörn og Hafravatni“ (Wikiheimild)
- Svavar Sigmundsson, „Er Nykur eða Nykurtjörn að finna á fleiri stöðum en í Svarfaðardal á Norðurlandi?“ Vísindavefurinn (2005)
- Ásgeir Blöndal Magnússon, Íslensk orðsifjabók (1989): „nykur“ (Árnastofnun)
- Ryan Denson, „Ancient Sea Monsters and a Medieval Hero: The Nicoras of Beowulf“, Shima 16(2) (2022)
- George E. J. Powell og Eiríkur Magnússon, Icelandic Legends (London, 1864) (Internet Archive)